- Þetta er einhliða ákvörðun allra banka og sparisjóða. Ekki var leitað til neytenda með þetta.
- Notendur eiga þess ekki kost að sleppa við þetta og reiða sig á hefðbundin lykilorð.
Öryggið er líka umdeilanlegt: Tólið er nú ýmist heimavið, þar sem óboðnir finna það, eða í lyklakippu í vasa.
En ef til vill eru mín helstu andmæli þau að með þessu virðist vera hafið ferli þar sem horfið er frá ákveðinni einfeldni og trausti í viðskiptum á íslandi. Í sambandi við það má nefna aðra frétt um notkun skilríkja. Í stað þess skal nú aukið á tortryggni til að tryggja eitthvað sem fréttatilkynningar kalla "öryggi" en er í raun aðeins aðferð til að sefa einhvern ótta sem líklega er ekki til.
Það er sem sagt verið að búa til vesin.
2 ummæli:
Agalegt. Það væri auðveldara ef fólk myndi bara asnast til að skipa um lykilorð einu sinni, tvisvar á ári.
Margir bankar, t.d. Landsbankinn, krefjast þess þegar að menn geri það á þriggja mánaða fresti.
Skrifa ummæli